|
Sunnudagur, 26. júní 2011 22:05 |
|
Sútunarnámskeið
Dagan 6. til 9. júní fór ég á sútunarnámskeið sem haldið var á Akranesi nánar tiltekið á byggðasafninu. Kennari var Linda Maasing frá Svíþjóð.
Sútað var aðallega fiskroð en sumir voru með lambskinn. Kenndar voru gamlar aðferðir s.s. barkarsútun, fitusútun og sútað úr þvagi.
Síðasta daginn náðum við að sauma úr fiskroði sem við höfðum sútað sjálf, var það góð tilfinning. Þegar námskeiðinu lauk var búið að leggja inn pöntun hjá Lindu, á námskeiði í haust til sútunar á húðum.
|
|
|
Sunnudagur, 26. júní 2011 15:02 |
|
Fleiri folöld
Nú eru þær kastaðar Eldfluga og Vaka. Eldfluga kastaði 26. mai og kom með rauðstjörnóttan hest unda Heimi frá Votmúla.
Vaka kastaði 14. júní og kom með rauðblesótta meri undan Spóa frá Hrólfsstaðahelli. Eigandi að nýja folaldinu er Hanna Arima. |
|
Sunnudagur, 22. maí 2011 18:54 |
|
Eldgos í Grímsvötnum
Það hefur verð að dimma yfir í allan dag og nú undir kl. 19.00 var útsýnið af hlaðinu hjá mér ekki meira en um 600 -700 m.
Það var dökkur veggur með fjöllunum í morgun en nú undir kvöld var hann kominn yfir og er greinilega að færast vestar.
Kindurnar sem eru í verunni hvítar eru nú öskugráar að lit en rólegar í haganum og ekki hægt að gera neitt nema gefa þeim vothey.
|
|
Laugardagur, 14. maí 2011 08:35 |
|
Vorboðarnir
Sauðburðurinn hefur gengið feikna vel nema hvað hrafninn hefur verið aðgangsharður. Þetta byrjaði rólega fyrstu vikuna í mai og svo spýttu ærna í. Núna er innan við þriðjungur eftir óborið af ánum en gemsarnir hafa farið aðeins hægar. Frjósemin góð og lítið um skakkaföll enn sem komið er.
Stóra Botna passaði vel upp á gimbrarnar sínar í morgusárð, lét ekki trufla sig og lömbin nut þess að kúra. Óþarfi að fara snemma á fætur þegar veðrið er gott og ekki kominn matartími. Mjöll var nýborin þegar ég mætti á svæðið og tók því vel að vera mynduð.
Fyrsta folaldið komið, María Meri var köstuð þegar ég kom til kinda í morgun um kl: 5:00 með bleikálótta meri undan Tígulás frá Marteinstungu. Tígulás fer í dóm núna næstu daga og vonandi gengur það vel, svo standardinn á búinu hækki.
Nýju smalahundarnir, systkinin Kappi og Doppa frá Hólum. Þau eru fædd 20. feb sl voru því aðeins 10 vikna þegar ég sótti þau í endan apríl. Þau voru spekingleg á nýja heimilinu fyrsta morguninn þegar þau fóru út að viðra sig.
|
|
|
|
|
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 Næsta > Síðasta >>
|
|
Síða 1 af 3 |